Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. ágúst 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjan kvist á norðurhlið, gera nýjan stiga milli annarrar hæðar og riss, breyta innra fyrirkomulagi og lækka land við suðurhlið húss á lóð nr. 11 við Fjölnisveg. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. ágúst 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. ágúst 2018.
Stækkun: x ferm., rúmm. Gjald kr. 11.000