Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka veitingastað í flokki II og að breyta í flokk III og að bæta rými 0102 sem áður var verslun við og innrétta þar bar og koma fyrir útipalli fyrir útiveitingar og betrumbæta ræstingu í kjallara í húsinu á lóð nr. 9 við Geirsgötu. Bréf frá hönnuði dags. 30. apríl 2015 og hljóðvistaskýrsla dags. 30 apríl 2015 fylgir. Gjald kr. 9.823