Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. mars 2022 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. dags. 9. febrúar 2022 um að reisa reiðhjólaskýli á baklóð Vínlandsleiðar 12-14, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 31. janúar 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2022.