Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að vegna nýs deiliskipulags fyrir Vesturlandsveg er afmörkun skipulags Saltvíkur fært í suðvestur fjær Vesturlandsvegi og miðast við veghelgun vegarins. Einnig færist vegtenging við Vesturlandsveg inn á nýjan hliðarveg, samkvæmt uppdrætti
Landslags ehf.
dags. 6. mars 2018. Tillagan var auglýst frá 28. mars 2018 til og með 9. maí 2018. Engar athugasemdir bárust. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. maí 2018 og er nú lagt fram að nýju.