Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að vegna nýs deiliskipulags fyrir Vesturlandsveg er afmörkun skipulags Saltvíkur fært í suðvestur fjær Vesturlandsvegi og miðast við veghelgun vegarins. Einnig færist vegtenging við Vesturlandsveg inn á nýjan hliðarveg, samkvæmt uppdrætti
Landslags ehf.
dags. 6. mars 2018. Tillagan var auglýst frá 28. mars 2018 til og með 9. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.