Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Grundarhverfis á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að vegna nýs deiliskipulags fyrir Vesturlandsveg er afmörkun skipulags Grundarhverfis færð til vesturs frá Vesturlandsvegi, samkvæmt uppdrætti
Landslags ehf.
dags. 6. mars 2018. Tillagan var auglýst frá 28. mars 2018 til og með 9. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.