Lögð fram umsókn Veitna ohf, mótt. 22. ágúst 2017, um endurnýjun á framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu aðalfráveitukerfis í Grundarhverfi á Kjalarnesi með tilheyrandi hreinsi- og dælustöðvum. einnig eru lagðir fram uppdrættir Almennu verkfræðistofunnar, dags. 12. febrúar 2008, bréf Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 27. janúar 2015 og dreifibréf Veitna vegna vinnu við tengingar, dags. 22. ágúst 2017.