Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. október 2017 var lögð fram fyrirspurn Bjarna Bærings Bjarnasonar, mótt. 6. september 2017, þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur og heimild til byggingar íbúðarhúsa á jörðinni Dalsmynni á Kjalarnesi. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi Bjarna Bærings Bjarnasonar mótt. 8. janúar 2018 og hugmyndum af fyrirhuguðum byggingargerðum.