breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Árvellir
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Árvalla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Árvalla er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að vesturlandsvegi færast í átt að Esjunni um 8-13 metra, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. Tillagan var auglýst frá 5. maí 2021 til og með 22. júní 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.