Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Árvalla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að vegna nýs deiliskipulags fyrir Vesturlandsveg er afmörkun skipulags Árvalla breytt þannig að þau miða við veghelgunarsvæði vegarins. Einnig breytist aðkoman að svæðinu, samkvæmt uppdrætti
Landslags ehf.
, dags. 6. mars 2018. Tillagan var auglýst frá 28. mars 2018 til og með 9. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.