Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Nýborgar ehf.
dags. 22. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar Skrauthólar á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að byggja við núverandi hús á lóð nr. 4 við Skrauthóla ásamt stækkun á lóðarskika sem skipt verður upp í þrjá hluta Skrauthóla 1, 5 og 6 sem eingöngu verða notaðir til landbúnaðar án mannvirkja, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts ehf. dags. 7. október 2014. Tillagan var auglýst frá 5. janúar til og með 17. febrúar 2015. Engar athugasemdir bárust.