Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar, mótt. 28. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar Skrauthólar á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að svæði vestan og norðan við núverandi húskosti nr. 4 við Skrauthóla verði ráðstafað fyrir ferðaþjónustu þar sem unnt er að leigja tjaldstæði, hjólhýsastæði og lítil færanleg smáhýsi með tilheyrandi þjónustubyggingu fyrir salernis og snyrtiaðstöðu. Aðkoma að svæðinu er um afleggjara frá Vesturlandsvegi í landi Skauthóla að sunnan og austanverðu sem tengir alla landskika jarðarinnar við opinbert gatnakerfi, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts ehf., dags. 23. nóvember 2016.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.