Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. janúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Reynis Kristjánssonar dags. 9. janúar 2015 þar sem óskað er eftir að farið verði í vinnu við gerð deiliskipulags fyrir jörðina Vellir á Kjalarnesi. Einnig er lögð fram hugmynd að deiliskipulagi dags. í janúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2015.