Lögð fram umsókn Evu Margrétar Reynisdóttur Wind, mótt. 21. september 2016, ásamt lýsingu, dags. 15. september 2016, vegna fyrirhugaðar vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Velli á Kjalarnesi. Um er að ræða skipulag smábýla/tómstundabýla innan jarðarinnar.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.