Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lögð fram umsókn Evu Margrétar Reynisdóttur Wind, mótt. 21. september 2016, ásamt lýsingu, dags. 20. september 2016, vegna fyrirhugaðar vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Velli á Kjalarnesi. Um er að ræða skipulag smábýla/tómstundabýla innan jarðarinnar. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.