Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 var lögð fram umsókn
Plúsarkitekta ehf.
dags. 6. apríl 2021 ásamt skipulagslýsingu dags. 1. apríl 2021 fyrir nýtt deiliskipulag í Prestshúsum að Kjalarnesi. Áformað er að byggja íbúðarhús ásamt gestahúsum og vinnustofu/fjölnota sal á landinu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.