Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Einars Ingimarssonar f.h. Brúneggja ehf., mótt. 6. apríl 2016, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Brautarholts á Kjalarnesi vegna lóðarinnar nr. 5 við Brautarholt. Í breytingunni felst að breyta svínabúi á jörðinni í alifuglabú, samkvæmt tillögu, ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. maí til 30. maí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Marteinn Másson hrl. f.h. Bjarna Pálssonar, dags. 25. maí 2016.