Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lögð fram umsókn Kristins Gylfa Jónssonar, mótt. 30. ágúst 2016, um framkvæmdaleyfi vegna jarðvegsmanar vestan og norðan meginn við húsin að Brautarholti 5 á Kjalarnesi. Einnig er lagður fram uppdr. Gunnlaugs Ó. Johnsons arkitekts, dags. 19. júní 2016 og bréf Kristins Gylfa Jónssonar f.h. Brúneggja ehf. og
Gjáholts ehf.
, dags. 22. ágúst 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 6. október 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2016.