Lögð fram umsókn Einars Ingimarssonar f.h. Brúneggja ehf., mótt. 6. apríl 2016, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Brautarholts á Kjalarnesi vegna lóðarinnar nr. 5 við Brautarholt. Í breytingunni felst að breyta svínabúi á jörðinni í alifuglabú, samkvæmt tillögu, ódags.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 1. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.