Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja atvinnuhús úr forsteyptum einingum á lóð nr. 5 við Varmadal. Erindi var grenndarkynnt frá 19. september 2022 til og með 17. október 2022. Engar athugasemdir bárust.