Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lögð fram fyrispurn Steins Sigríðarsonar Finnbogasonar, mótt. 6. desember 2016, varðandi afmörkun spildu í landi Móa á Kjalarnesi, samkvæmt, tillögu Klappar Arkitekta-verkfræðinga ehf., dags. september 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. desember 2016.