Lögð fram umsókn
Landmótunar sf.
, mótt. 16. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Mógilsá og Kollafjarðar, svæði Þ1 - þjónustumiðstöð við Mógilsá. Í breytingunni felst m.a. að stækka byggingarreit A á svæði Þ1 og færa skilti og gönguleið út fyrir byggingarreit, samkvæmt uppdr.
Landmótunar sf.
, dags. 5. september 2016
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.