breyting á deiliskipulagi
Mógilsá og Kollafjörður
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 12. febrúar 2020 þar sem ekki er gerð athugasemd við birtingu auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda þegar stofnuninni hafa borist lagfærð gögn þar sem að í ljósi nýrrar umsagnar Minjastofnunar Íslands frá 24. janúar 2020, verði vísað til þess í umfjöllun um fornminjar, að gerðir verði könnunarskurðir innan heimatúns, í reiti A og B og bílastæði. Bæta þarf breytingardagsetningu við á kortablað sbr. ofangreinda breytingu. Einnig er lagður fram uppdr. Landmótunar dags. 10. október 2019 síðast br. 12. febrúar 2020.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar