Lögð er fram fyrirspurn Hjördísar Hendriksdóttur dags. tölvupósts 21. mars 2022 ásamt greinargerð ódags. þar sem óskað er eftir að skráning skv. gildandi deiliskipulagi Mógilsá-Kollafjarðar, verði leiðrétt fyrir lóðina Austurkot (fastanúmer 2085301) þannig að lóðin verði skráð í deiliskipulagi sem lóð fyrir íbúðir en ekki sem sumarhúsaland. Lögð eru fram gögn þess efni sem sýna að greitt hafa verið fasteignagjöld af húsnæðinu sem einbýlishús á íbúðarhúsalóð. Um er að ræða 66 fm einbýlishús sem vantar nýjar veitulagnir og Veitur neita að koma að málinu þar sem skráning á húsinu/ lóðinni er sumarhús skv. skipulagi. Þannig er óskað eftir að deiliskipulagi verði breytt í samræmi við þá ósk um leiðréttingu sem er nefnd hér að framan.