Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29.janúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Sigurjóns Benediktssonar, mótt. 11. janúar 2016, varðandi uppbyggingu í landi Hofs á Kjalarnesi vegna þjónustu fyrir hestamenn og gangandi ferðalanga á spildu í landi Hofs á Kjalarnesi sem felst í salernisaðstöðu, hesta- og farangursskýli með möguleikum á kaffisölu og aðstöðu fyrir starfsfólk. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.