Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Esjuhofs á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Esjuhofs hliðrast um 2-3 m til austurs, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. Tillagan var auglýst frá 5. maí 2021 til og með 22. júní 2021. Engar athugasemdir bárust.