Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. mars 2021 var lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Esjuhofs á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Esjuhofs hliðrast um 2-3 m til austurs, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.