Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lögð fram fyrirspurn
Plúsarkitekta ehf.
dags. 30. ágúst 2019 varðandi gerð nýs deiliskipulags fyrir Nesvík á Kjalarnesi vegna uppbyggingu ferðaþjónustu. Einnig er lögð fram fyrirspurnartillaga dags. í ágúst 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2019.