Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. maí 2016 var lögð fram fyrirspurn Lögmanna Bárugötu slf., mótt. 25. apríl 2016, varðandi uppbyggingu hótelrekstrar og tilheyrandi mannvirkja í landi Nesvíkur á Kjalarnesi. Einnig er lagt fram bréf Haralds F. Tryggvasonar hdl., dags. 19. apríl 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. maí 2016.