Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun sumarbústaðar, mhl. 01, og félagsheimilis, mhl. 02 í gististaði, ásamt áður gerðum breytingum á innra skipulagi í húsum á lóð við Nesvík á Kjalarnesi. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2017.
Gjald kr. 11.000