Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 9. júlí 2019 þar sem stofnunin getur ekki tekið afstöðu til deiliskipulagsbreytingarinnar þar sem framsetning á uppdrætti er ekki í samræmi við gr. 5.8.5.3 í skipulagsreglugerð. Jafnframt þarf uppdráttur er sýnir gildandi aðalskipulag að vera í samræmi við framangreinda aðalskipulagsbreytingu.