Lagt fram erindi deildarstjóra atvinnuþróunar f.h. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags. 5. september 2019 þar sem óskað er eftir að skipulagsfulltrúi vinni tillögu að deiliskipulagsbreytingu á athafnarsvæðinu við Esjumela á Kjalarnesi með það að markmiði að þar verði útbúin lóð fyrir starfsemi Malbikunarstöðvarinnar Höfða.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.