Lögð fram umsókn Skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 16. ágúst 2022 um framkvæmdaleyfi vegna heildarframkvæmda við gerð gatna og jarðvegsskipti fyrir göngu- og hjólastíga og lagnir á Esjumelum. Verkið felst í gerð nýrra gatna og fullnaðarfrágangi stofnlagna fráveitu, skólplagna, vatns í götustæði, stofnlagna hitaveitu, rafmagns og ljósleiðara í gangstéttarstæði, götulýsingar og heimæða aðliggjandi lóða. Einni er lagður fram uppdr. VSÓ ráðgjafar dags. 16. júní 2022.