Lögð fram umsókn
Veitna ohf.
dags. 11. janúar 2019 um framkvæmdaleyfi vegna lagningu nýrra heitavatnslagna og háspennukapal að nýrri gas- og jarðgerðarstöð Sorpu í Álfsnesi. Einnig er lögð fram teikning
Veitna ohf.
að fyrirhugaðri lagnaleið dags. 11. janúar 2019.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.