Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Guðjóns Júlíusar Halldórssonar dags. 8. júlí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Fitja á Kjalarnesi. Í breytingunni felst uppbygging á lóð sem tengist ferðaþjónustu og landbúnaði, samkvæmt uppdr. Einars Ingimarssonar dags. 19. maí 2014. Tillagan var auglýst frá 27. ágúst til og með 8. október 2014. Engar athugasemdir bárust.