(fsp) stofnun lóða
Kjalarnes, Fitjar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 887
6. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Guðjóns Halldórssonar, dags. 13. september 2022, um að stofna tvær sérbýlishúsalóðir í landi Fitja á Kjalarnesi, samkvæmt skissu á yfirlitsmynd ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2022.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2022. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.