Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. nóvember 2013 var lagður fram tölvupóstur Ingibjargar R Þengilsdóttur og Jóns Jóhanns Jóhannssonar dags. 19. nóvember 2013 varðandi niðurrifsskilmála á einbýlishúsi í Perluhvammi í landi Fitjakots á Kjalarnesi. Einnig er lagt fram bréf Ingibjargar R Þengilsdóttur og Jóns Jóhanns Jóhannssonar dags. 4. nóvember 2013. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. desember 2013.