Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. febrúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Freys Frankssonar, mótt. 25. janúar 2017, varðandi uppbyggingarmöguleika í landi Fitjakots á Kjalarnesi. Einnig er lagt fram bréf Úti og inni arkitekta sf., dags. 28. október 2016. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2017.