Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 14. febrúar 2013 var lögð fram fyrirspurn Guðjóns Grétarssonar dags. 13. febrúar 2013 um að koma fyrir íbúð í austurhluta hússins, á lóðinni nr. 3 við Tinda á Kjalarnesi, smíðaverkstæði í miðhluta og geymsluaðstöðu í vesturhluta. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2013.