Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 28. október 2011 var lögð fram fyrirspurn Ragnhildar Ingólfsdóttur dags. 25. október 2011 varðandi breytingu á notkun hússins á lóðinni nr. 3 við Tinda á Kjalarnesi. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 3. nóvember 2011.