Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Önju Þórdísar Karlsdóttur dags. 13. febrúar 2019 varðandi byggingu vélaskemmu á lóð Stekks á Kjalarnesi, samkvæmt tillögu dags. 3. febrúar 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. febrúar 2019.