Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. júní 2018 var lögð fram fyrirspurn Kjalarness ehf. dags. 19. júní 2018 ásamt bréfi dags. 18. júní 2018 um breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar Sætún á Kjalarnesi sem felst í að afmarkaðar eru tvær lóðir undir atvinnustarfsemi samkvæmt tillögu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. ágúst 2018.