Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. apríl 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, mhl. 01 með timburþaki og torfhleðslum á þaki og veggjum og bílskúr með geymslu og sorpgeymslu, mhl. 02 úr timbri á steyptum undirstöðum og sömuleiðis með torfhleðslum sbr. erindi BN031094 samþ. 10.5. 2005 á lóðinni Smábýli nr. 5 á Kjalarnesi, landnúmer 125869. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 2. maí 2013.
Stærðir: einbýlishús 105,4 ferm., 383,1 rúmm. Bílskúr 32 ferm., 93,4 rúmm. Samtals 137,4 ferm., 476,5 rúmm. Gjald kr. 9.000