Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Sigurbjörns Hjaltasonar, mótt. 9. júní 2017, varðandi byggingu allt að 300 fm. íbúðarhúss í landi Norðurkots á Kjalarnesi, samkvæmt fyrirspurnaruppdr., dags. 8. júní 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. júní 2017.