Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn Benedikts Sveinssonar dags. 8. apríl 2019 ásamt greinargerð ódags. um afnot af landi/lóð Reykjavíkurborgar í Álfsnesi nálægt urðunarstað SORPU bs. undir amatörradíó til lengri tíma en fyrirhugað er að setja 10-15 fm. skúr á lóð ásamt loftnetum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2019.