Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. september 2016 var lagt fram bréf skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, dags. 25. ágúst 2016, þar sem bréfi Björgunar ehf., dags. 8. júní 2016, um möguleika þess að
Björgun ehf.
fái lóð undir starfsemi sína í Álfsnesi er vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til umfjöllunar. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.