Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra dags. 24. febrúar 2014 vegna afgreiðslu borgarráðs 20. febrúar 2014 um að fela umhverfis- og skipulagssviði að undirbúa gerð deiliskipulags á Álfsnesi. Einnig er lagt fram bréf framkvæmdastjóra samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu dags. 5. febrúar 2014 varðandi niðurstöður eigendafundar Sorpu bs. vegna undirbúning að framkvæmdum við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar á Álfsnesi, ásamt fylgigögnum.