Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Höskuldssonar dags. 17. janúar 2019 ásamt greinargerð Hlínar Sverrisdóttur ódags. um uppbyggingu á lóð nr. 8 við Leiruvog á Kjalarnesi. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. febrúar 2019.