Á fundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. janúar 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi og staðsetja þrjú bílastæði á framlóð hússins nr. 18 við Suðurgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.