Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. mars 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sorpskýli, mhl. 02, úr heitsinkuðu stáli á steyptum undirstöðum, klætt með timbri og pappa á þaki við fjölbýlishús á lóð nr. 27 við Sólheima. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2015.
Meðfylgjandi er greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 23. febrúar 2015. Stærð, B-rými: 22,2 ferm., 55,5 rúmm. Gjald kr. 9.823